English

Ávinningur heilsueflingar á líkamssamsetningu, hreyfifærni, afkastagetu og efnaskiptavillu eldri einstaklinga

Eldri borgarar er sá hópur sem reiðir sig hvað mest á stuðning heilbrigðis- og velferðarþjónustu í samfélaginu. Góð hreyfigeta á efri árum getur haft jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og sjálfstæði. Slök hreyfigeta getur aftur á móti skert athafnir daglegs lífs og dregið úr lífsgæðum og sjálfstæði.

Rannsóknarsnið var hentugleikaúrtak eldri borgara (n = 193), 65 karla og 128 kvenna, á aldrinum 65–95 ára. Þjálfunaríhlutunin innihélt daglega þolþjálfun og styrktarþjálfun tvo daga vikunnar. Við upphaf rannsóknarverkefnis voru framkvæmdar mælingar á líkamssamsetningu, hreyfifærni, vöðvastyrk, þoli og tengdum heilsufarsbreytum til að meta heilsufarsstöðu þátttakenda. Einnig voru teknar blóðprufur til að skima fyrir efnaskiptavillu (e. metabolic syndrome). Efnaskiptavilla er hugtak sem lýsir ákveðnu líkamsástandi og því fylgir aukin hætta á hjarta- og æðasjúkdómum auk sykursýki af tegund tvö. Mælingar voru endurteknar að lokinni sex mánaða þjálfun til að skoða áhrif þjálfunar á mælibreytur.Eftir sex mánaða heilsueflingaríhlutun varð 96% bæting á daglegri hreyfingu þátttakenda (p 0,001). Fitumassi lækkaði um 4,6% (p 0,001) og blóðþrýstingur lækkaði einnig, þanbilsþrýstingur um 6,2% (p 0,001) og slagbilsþrýstingur um 2,9% (p 0,001). Vöðvaþol í efri líkama jókst um 17% (p 0,001), í neðri líkama um 22,3% (p 0,001) og gönguvegalengd í sex mínútuna gönguprófi jókst um 5,9% (p 0,001). Algengi efnaskiptavillu lækkaði á þjálfunartíma um 32,7% (p 0,001) þar sem 18 einstaklingar (8 karlar og 10 konur) af 55 þátttakendum (19 körlum og 36 konum) sem greindust með efnaskiptavillu færðust úr áhættu.

Niðurstöður þessarar rannsóknar eru sambærilegar öðrum rannsóknum um heilsufarslegan ávinning fjölþættrar heilsueflingar. Niðurstöður renna sterkum stoðum undir mikilvægi þess að koma á markvissri stefnu og aðgerðaáætlun í heilsutengdum forvörnum fyrir eldri aldurshópa á Íslandi og fylgja eftir alþjóðlegum viðmiðunum um daglega hreyfingu, reglubundinni styrktarþjálfun, ráðgjöf um næringu og aðra heilsutengda þætti.

Heilsupistill.pdf

Hlaða niður

Fleiri fréttir